Private company
Kaffi Hljómalind
Kaffi Hljómalind var kaffihús sem fyrst var við Laugaveg 21 , á horni Klapparstígs í Reykjavík, en flutti seinna upp á Laugaveg 23. Það var stofnað vorið 2005. Það var samvinnurekið á grundvelli hugmyndafræði sem heitir Framsækin nytjastefna (PROUT), en í því felst m.a. að starfsfólk og og eigendur eiga að vera nokkurn veginn sami hópurinn, og á því enginn að vera arðrændur og valdi innan fyrirtækisins á að vera dreift, auk þess sem 10% af tekjum af rekstrinum eiga að renna til góðra málefna. Kaffihúsið lagði sig fram um að það sem þar er á boðstólum uppfylli kröfur um lífræna ræktun og sanngjarna viðskiptahætti. Þar var hvorki boðið upp á áfengi, fisk- eða dýraafurðir (að undanskilinni lífrænni mjólk), lauk, hvítlauk né sveppi.2 From the Icelandic Wikipedia, CC BY-SA 4.0
Last updated Oct 21, 2026.
Sources
The numbers on this page point here. Each one links to the record it came from.
- 1WikidataKaffi Hljómalind on Wikidata
- 2