Private company
Minjavernd
Minjavernd er hlutafélag í eigu ríkissjóðs, Reykjavíkurborgar og sjálfseignarstofnunarinnar Minja. Félagið var stofnað í apríl árið 2000 sem hlutafélag. Það byggir hins vegar á grunni starfs Torfusamtaka aftur til nóvember 1979. Þá náðust samningar á milli ríkissjóðs og Torfusamtakanna um leigu samtakanna á stærstum hluta Bernhöftstorfu gegn endurbyggingu á húsum þar. Samtökin stóðu að þeirri uppbyggingu þar til í apríl 1985. Þá var Minjavernd stofnuð sem sjálfseignarstofnun með aðild Ríkissjóðs, Þjóðminjasafnsins og Torfusamtakanna og eignaðist Minjavernd þá og síðar öll húsin á Bernhöftstorfu. Rekstrarformi Minjaverndar var breytt í hlutafélagi árið 2000 eins og áður sagði og tók þá sjálfseignarstofnunin Minjar við hlutverki Torfusamtakanna sem aðili að Minjavernd. Í september það ár gerðist Reykjavíkurborg svo hluthafi og lagði til félagsins eignir sínar við Aðalstræti og í Grjótaþorpi. Framkvæmdastjóri Minjaverndar frá upphafi hefur verið Þorsteinn Bergsson.2 From the Icelandic Wikipedia, CC BY-SA 4.0
Last updated Oct 21, 2026.
Sources
The numbers on this page point here. Each one links to the record it came from.
- 1WikidataMinjavernd on Wikidata
- 2