Private company
Rækjuverksmiðja Ísafjarðar
Rækjuverksmiðja Ísafjarðar is an Icelandic factory company based in Ísafjörður.1
Rækjuverksmiðja Ísafjarðar var verksmiðja sem var stofnsett á kreppuárunum og tók til starfa 23. júní 1936. Hún var í eigu Ísafjarðarbæjar og var í húsnæði í Neðstakaupstað. Þar var rækja pilluð, lögð í dósir og soðin niður. Norðmennirnir Ólsen og Syre veiddu rækjur og seldu til vinnslu í verksmiðjuna en þeir höfðu þá fundið góð rækjumið í Hestfirði. Verksmiðjustjórar í rækjuverksmiðjunni voru Þorvaldur Guðmundsson sem seinna varð þekktur sem Þorvaldur í Síld og Fisk og Tryggvi Jónsson frá Akureyri sem stofnsetti seinna niðursuðuverksmiðjuna Ora. Sumarið 1936 störfuðu 50 manns við rækjuvinnsluna.2 From the Icelandic Wikipedia, CC BY-SA 4.0
Last updated Oct 21, 2026.
Sources
The numbers on this page point here. Each one links to the record it came from.
- 1
- 2