Private company

Rafha

Rafha (Raftækjaverksmiðjan í Hafnarfirði) er fyrirtæki í Hafnarfirði sem í um það bil hálfa öld framleiddi raftæki, en hefur nú hætt framleiðslu þeirra og sérhæfir sig í innflutningi á raftækjum og innréttingum. Fyrirtækið var stofnað þann 29. október 1936 og sérhæfði sig fyrst í framleiðslu rafmagnseldavéla en síðar allra helstu heimilistækja. Framleiðsla Rafha var talin vera til ómetanlegs hagræðis á styrjaldarárunum, auk þess sem hún sparaði ríkinu drjúgan gjaldeyri. Í árslok 1960 hafði verksmiðja fyrirtækisins framleitt 86.000 raftæki af meira en þrjátíu gerðum, fyrir utan 11.000 ljósatæki. Árið 1986 opnaði Rafha 700 fermetra verslunarhúsnæði í gömlu verksmiðjunni í Hafnarfirði.2 From the Icelandic Wikipedia, CC BY-SA 4.0

Last updated Oct 21, 2026.

Overview

Sources

The numbers on this page point here. Each one links to the record it came from.

  1. 1
  2. 2